ridursig
April 29th
Female
Selfoss
... í nafni Ástríðar..

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

ástríða

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Wednesday, February 14, 2007
Ó þú digri Valentínus

Það getur verið gaman að lífga upp á annars leiðinlegt slide show.

Ég var að flytja verkefni í dag um listamenn- rýmisverk og hluti. 

Við áttum að bera saman 3 listamenn og þegar kom að þeim hluta kynningarinnar, splæstum við 2 glærum í grín.

1. glæra:  Samanbruður (og mynd af bruðum)

2. glæra:  náðuði þessum?

Jebb.. flestir náðu þessu.

MMmmmm...æli með því...

By the way... það var kökudagur í dag og Ingibjörg kom með algjört hnossgæti:  Döðlukaka með karamellukremi.  Takk fyrir mig!


Posted at 11:35 pm by ridursig
Comments (5)  

Saturday, February 03, 2007
Varðandi nýju kakómjólkina..,,kappi"

...væri ekki ,,keppi" meira viðeigandi nafn?

Í öðrum fréttum:
-ég var í fjörugum kóræfingabúðum
-himininn  var fallegur í dag
-það er hálka
-mér er heitt í kinnunum

Posted at 10:02 pm by ridursig
Make a comment  

Tuesday, January 30, 2007
Þú veist að árið er 2007 þegar..

.. þú ,,verður" að kíkja á nokkrar vefsíður eftir lestur blaðsins.

Annars hvet ég alla þá sem hafa áhuga fólki að lesa grein á bls. 34 í fréttablaðinu í dag. 

,,Heimsþekktur afhommari á Íslandi"

Ég er frekar hlutlaus gagnvart samkynhneigðum en ég verð nú að segja að ég hafi gapað við lesturinn. 

"...samtaka sem ...fá yfir yfir 400 þúsund símtöl árlega hvaðanæva að úr Bandaríkjunum frá fólki sem vill losna frá samkynhneigð sinni."  !!!
Segir þetta okkur eitthvað um Bandaríkjamenn? 


,,Margir vilja losna út úr þessu og við vildum sýna frám á að það er valkostur.  Eins og Chambers sagði í sínum vitnisburði þá var þetta ekki auðvelt fyrir hann.  En þetta var það sem hann vildi. ...maður finnur til með þessu fólki sem ekki bað um þessar tilfinningar."

,,Þetta var nokkurra ára ferli fyrir Chambers." 

Já ekki er öll vitleysan eins. 

P.s.  Ferlega flott nýja auglýsingaherferðin, með 15 ára gæjanum sem kallaði vin sinn fávita á netinu.  Hún er svona álíka skemmtileg og sko herferðin er dapurleg.   Ekki slæmt fyrir auglýsingastofuna að slá í gegn með fyrstu auglýsingaherferðinni. 

Posted at 10:19 am by ridursig
Make a comment  

Wednesday, January 10, 2007
Tiger- ekki bara skran

Ég fann spennandi uppskrift um daginn og í henni átti að vera "Reykt paprika"

Ég fór í búðina og heilsubúðina en enginn hafði heyrt um þetta áður.  Svo ég notaði bara venjulegt paprikuduft.

Í dag fór ég í Tiger í Kringlunni að kaupa mér skissubók. 

Og mér til mikillar furðu fann ég þar líka reykta papriku...

Boðskapur sögunnar: Leita í Tiger ef mann vantar eitthvað í uppskrift


Posted at 06:43 pm by ridursig
Comments (9)  

Tuesday, January 09, 2007
Afhverju hleypurðu ekki?

Hannes Smárason hleypur alltaf!

Ég þekki eina stelpu sem fékk framkvæmdabókina í jólagjöf...
..ég lét hana hafa hlut í október í fyrra og hún var að skila mér honum í dag.

...græjan virðist virka.


,,Notarðu ekki rollon?  Hannes Smárason notar alltaf rollon...!"



Posted at 10:21 pm by ridursig
Make a comment  

Tuesday, January 02, 2007
Ég er heit...

...áramótaheit?

Þetta ár er búið að vera meiriháttar...

Húsó
Ævintýraferðin með Önnu
Ný vinna í sumar
Gönguferðin
Þjóðhátíð á sunnudeginum
Myndlistaskólinn
Dass af skemmtunum
Mikil vinna
Mikil gleði


Það er sosum úr nógu að velja af heitum sem ég gæti strengt...
...hmm... eitthvað viðráðanlegt...

Ég ætla að...
hætta...

... að borða nammi...

...í febrúar! ;)


Posted at 10:06 pm by ridursig
Comments (2)  

Monday, December 18, 2006
Þú veist að jólin eru að nálgast...

...þegar þú brennir hafragrautinn við.

Hafragrautur þarf ekki nema 1-2 mínútur í suðutíma. 

Hvernig datt mér í hug að ég gæti farið í sturtu á meðan? 
Og...hvað hélt ég að ég myndi græða á því?


Þegar ég var á leið í skólann einn morguninn í síðustu viku sá ég Lexus stopp með hasar-ljósin á.  Nokkrum metrum framar var maður í hvítri skyrtu að ganga í hífandi roki og hundslappadrífu.  Ég setti samansem merki milli þeirra og skrifaði bakvið eyrað:  Alltaf að hafa snjógalla með í skottinu ef þú eignast Lexus einn daginn.  Þú býrð á Íslandi.

Næsta dag las ég pistil eftir Betu Rokk í Fréttablaðinu þar sem hún var að kvarta undan Íslendingum.  Hún hafði lent í því að sprengja dekk og ekki einn einasti maður hafði boðið henni hjálparhönd.  Þetta var leiðinlegur pistill, geislaði af biturð, snobbi og tilætlunarsemi. 

Daginn þar eftir lenti ég í því að festa bílinn minn upp á kanti.  Beygði of snöggt út úr bílastæðahúsi og sat föst.  Sem betur fer voru tveir gæjar þarna með kærustunum sínum sem fórnuðu kröftum sínum og tíma í að hjálpa mér. 

Það hefur tvisvar sinnum sprungið dekk hjá mér og í bæði skiptin hefur komið vaskur karlmaður og hjálpað mér.  Einu sinni keyrði ég líka útaf og allir voru meira en til í að hjálpa mér. 

Ég var líka föst í miðbæ Reykjavíkur einn morguninn.  Leigubílasamgöngur voru niðri, það var aftakafærð og ég þurfti að koma mér á kóræfingu.  Kærasti vinkonu minnar kom og skutlaði mér á kóræfingu.

Um helgina týndi ég svo símanum mínum.  Daginn eftir hringdi maður sem hafði fundið símann.

Svona hluti þykir mér reglulega vænt um... þegar fólk leggur á sig, eyðir tíma sínum og peningum í að hjálpa náunganum og gera manni lífið auðveldara.    






Posted at 12:21 pm by ridursig
Comments (4)  

Wednesday, December 13, 2006
Ný rekstrarvél og vanir menn óskast... heyskapur í hámarki

Fór í Hornið.

Beið eftir að gæji bakkaði út úr stæði áður en ég lagði mig þar.

Hann bakkaði og keyrði svo löturhægt framhjá mér og glápti inn í bílinn.

1. hugsun:  ,,Er þetta undercover agent?  Eins gott að ég kom fyrst hingað áður en ég sótti góssið."

2. hugsun:  ,,Rólegur drengur... ég veit þetta er ljótur trefill!"

3. hugsun:  ,,Viltu ekki bara taka mynd?  Þú ert of ungur vinur...eða hvað?"

Þegar ég var búin að leggja ofur fagmannlega í stæðið, steig ég ofursvöl út úr bílnum og BAMM!!! Ofursvölu ofurdömunni tókst að reka höfuðið upp undir.  (Ég er búin að eiga þennan bíl í hartnær 4 ár!)

Ég dó inn í mér en hrifsaði kúlið upp úr götunni, nuddaði hausinn og hélt áfram mína leið inn í Horn. 
Á leiðinni sé ég mér til mikillar furðu að peyjinn hefur stöðvað bílinn sinn og er stíginn út.  Svo heyri ég drengstaulann kalla á eftir mér :  ,,Rakvél!" 

Ég:  (Hvað?  Eitthvað er hann nú afbrigðilegur þessi...er hann að fífla mig?)

Peyjinn aftur aðeins hærra:  ,,Rakvél!" 

Ég vissi ekki hvernig ég átti að haga mér en brosti vandræðalega og hristi hausinn:

,,Nei takk, er að fara í vax á morgun..."

Posted at 11:41 pm by ridursig
Make a comment  

Monday, December 11, 2006
...fyrir pabba

Styttist í jólin...
ein spurning sem fylgir því er: 
,,Hvað langar þig í jólagjöf?"

here goes nothing...

Kitchen Aid hrærivél
Jólasængurföt
Jólanáttföt
Jólanærföt
Bleika Pardus myndasögubók
Cindy Sherman ljósmyndabók
Göngustafi
Legghlífar
Ullarundirföt
Kommóðu
Nuddtíma
Snyrtidót
Geisladiska
I-pod dót
Kennslubók í módelteikningu
Passlega ljóta peysu
Passlega ljóta sokka
Rútuökutíma


...Þetta er ekki í neinni sérstakri röð en skemmtilegast finnst mér að fá gjafir sem virkilega koma á óvart! :D

Í öðrum fréttum er það helst að listamaðurinn Ragnar Kjartansson eða Rassi Prump sem er helst þekktur fyrir það að vera söngvari í hljómsveitinni Trabant er að kenna mér módelteikningu þessa síðustu viku skólans. 

Jólasnjór jólasnjór...




Posted at 12:15 pm by ridursig
Comments (3)  

Monday, December 04, 2006
Út vil ek

Hver hefur áhuga á að ferðast með mér í ca. mánuð í apríl/maí á næsta ári, áður en sumarvinnan byrjar.  Er búin frekar snemma í skólanum og langar í ævintýri...


Það má líka koma með tillögur að ævintýrum ;)

...já og fryst ég er að þessu... hvernig líta jólagjafalistarnir út þetta árið?  Hvað á maður að biðja um?

Posted at 08:10 pm by ridursig
Make a comment  

Next Page